top of page

PRENTUN

Ég sætti mig ekki við meðalmennsku þegar það kemur að útprentun verka minna eða annara. Ég býð því upp á hágæða 10 lita bleksprautuprentun. Þessi prentun er sú nákvæmasta sem völ er á og komin fram úr hefðbundnum silfurhalíð ljósmyndum. Upplausnin er allt að 2880 x 1440 dpi með pigment bleki og ég nota aðeins archival grade pappír frá viðurkenndum framleiðendum.

 

Epson SC9000 með Epson UltraChrome® HDX bleki gefur mun meiri litmettun og þéttni (Dmax) heldur en hefðbundinn ljósmyndapappír. Það þýðir dýpri og sterkari litir, meiri kontrast og skerpa. Endingin er mjög góð eða almennt um 200 ár, miðað við prent rammað undir gleri, í birtu sem nemur 120 lux í 12 tíma á dag.

Ég styðst við lista yfir endingu á hráefninu frá Wilhelm Imaging Research sem óháð rannsóknarstofnun. Til að fá góða endingu er ekki síður mikilvægt að velja réttan pappír.

En tækin segja ekki nema hálfa söguna. Ég býð upp á yfirlegu og samvinnu sem tryggir útkomuna sem þú ert að leita eftir. Ef þekkingin er ekki til staðar verður útkoman aldrei nógu góð.

Ég hef áralanga þjálfun í því að vinna hágæða myndir. Ég byrjaði snemma að læra af föður mínum Mats.
Sá gamli er kröfuharður og því var það góður skóli. Það var dýrmætt að læra hliðræna handverkið frá grunni. Þó að stafræn prenttækni hafi yfirtekið myrkraherbergið og framköllunarvökvann eru gildin þau sömu.

Epson SC9000
framed_prints.png
bottom of page